Fyrsti 100% rafbíllinn frá Mazda með 5 stjörnur í öryggisprófun EURO NCAP

Nýi hreini rafbíllinn Mazda MX-30, fær 5 stjörnur í nýjasta árekstrarprófi Euro NCAP. Öryggisstofnunin kynnti nýverið til sögunnar nýjar prófunaraðferðir þar sem auknar kröfur eru gerðar til öryggisbúnaðar og aðstoðarkerfa bíla. Mazda MX-30 rafbíllinn undirgekkst nýjasta prófið og hlaut frábæra einkunn eða 91 stig fyrir öryggi bílstjóra og farþega þegar kemur að öryggi í árekstri að framan og á hlið.

Þetta er besti árangur hingað til í þessum flokki, eftir að nýir prófunarstaðlar voru kynntir. Á sama tíma hlaut Mazda MX-30, 87 stig fyrir getu sína til að vernda börn í bílnum.

Umfang öryggiskerfa og virkni þeirra skipta ótrúlega miklu máli þegar bílar eru öryggisprófaðir og hvort bíll geti náð 5 stjörnum. Mazda MX-30 er ótrúlega vel búinn fjölda virkra öryggiskerfa til að koma í veg fyrir árekstur við aðra vegfarendur - hvort sem það eru bílar í umferðinni eða gangandi eða hjólandi vegfarendur.

Kerfið er útbúið skynjurum sem aðstoða ökumann við að greina aðkallandi hættur í umhverfinu og láta ökumann vita um leið. Daglegur akstur í Mazda MX-30 verður enn auðveldari með framrúðuskjánum og bakkmyndavélinni.

Einnig má nefna Smart City Brake stuðning sem er stöðugt að fylgjast með hraða bílsins og fjarlægð í næstu hindrun og bregst við óvæntum hindrunum. Mazda MX-30 rafbíll er búinn 10 loftpúðum, sem er nýtt hjá Mazda, öryggispúðar eru t.a.m staðsettir milli ökumanns og farþega að framan auk hliðarpúða í aftursæti.