Fyrsti rafknúni jepplingurinn kominn á Evrópumarkað

Fyrsti rafknúni jepplingurinn er kominn á Evrópumarkað. Um er að ræða borgarsportjeppann Hyundai Kona sem kynntur var hér á landi um síðustu helgi. Kona er fyrsti jepplingurinn sem er í 100% rafdrifinni útgáfu. Kona Electric er með 204 hestafla rafmótor við 64 kWh rafhlöðu sem dregur allt að 482 km samkvæmt mælistaðlinum WLTP og er hægt að hlaða rafhlöðuna í 80% á innan við klukkustund.

Hægt er velja milli þriggja akstursstillinga; Eco, Comfort og Sport og breytist viðmót mælaborðsins eftir því hvaða stilling er valin. Hámarkshraði rafbílsins er 167 km/klst og hröðunin aðeins 7,6 sekúndur úr kyrrstöðu í 100 km/klst enda er krafturinn í bílnum eitt það fyrsta sem fólk nefnir að loknum bíltúr og áberandi í umfjöllunum blaðamanna sem prófað hafa bílinn.

Kona Electric er búinn öllum helstu tæknilausnum Hyundai, bæði hvað varðar öryggisbúnað og snjalltækni afþreyingar. Sem dæmi má nefna lyklalaust aðgengi og speglun akstursupplýsinga á framrúðuna framan við ökumann. Skynvædda hraðastillingu sem heldur öruggu bili frá næsta bíl á undan, sjálfvirka skiptingu milli háa og lága ljósgeislans við mætingu bíla, akreinavara, blindhornsviðvörun, árekstarvara, bakkmyndavél og þráðlausa símahleðslu.

Auk mjög góðra hljómtækja frá Krell sem tengd eru Apple Car Play og Android Auto2. Þá er Kona Electric ennfremur búinn notendavænum 8“ snertiskjá með leiðsögukerfi og með raddskipun á ensku er hægt að biðja afþreyingakerfið um að hringja í þau númer sem vistuð eru í símanum.