Gæði og öryggi eigi að vera í öndvegi

Í skýrslu Ríkisendurskoðunar sem kynnt var í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis í gær kemur fram að að taka verði á stefnumörkun Vegagerðinnar fastari tökum og kröfur um gæði og öryggi eigi að vera í öndvegi

Tryggja þarf virka notkun gæðastjórnunarkerfis og að ferlar sem varða öryggisstjórnun séu virkir og uppfærðir reglulega.

Alþingi samþykkti fyrir tveimur árum skýrslubeiðni frá ríkisendurskoðanda um úttekt á starfsemi Vegagerðarinnar. Í greinargerð með skýrslubeiðninni er sagt að hlutverk Vegagerðarinnar sé veigamikið í íslensku samfélagi en að misserin þar á undan hafi verið nokkur umræða um Vegagerðina í kjölfar mála þar sem ófullkominn frágangur vega leiddi til tjóns og jafnvel dauða vegfarenda.

Skýrslan var kynnt í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis í gær og eru helstu niðurstöður þessar:

  • Taka verði stefnumörkun Vegagerðarinnar fastari tökum og hafa kröfur um gæði og öryggi í öndvegi. Mikilvægt sé að Vegagerðin efli ráðstafanir sínar varðandi öryggisstjórnun með innleiðingu faggilts eftirlits með framkvæmdum.
  • Tryggja verði rekjanleika fjárhagsupplýsinga niður í tiltekin verk.
  • Fylgja þurfi eftir úrbótum á innri endurskoðun, forstjóri Vegagerðarinnar verði að hlúa að starfsumhverfi innri endurskoðanda og sjá til þess að brugðist verði við ábendingum og niðurstöðum hennar.
  • Tryggja þurfi virka notkun gæðastjórnunarkerfis og að þeir ferlar sem varða öryggisstjórnun séu í virkri notkun, séu yfirfarnir og uppfærðir reglulega.
  • Þá telur Ríkisendurskoðun mikilvægt að Vegagerðin fylgi stefnumótun sinni markvisst eftir og haldi áfram að þróa hana í samræmi við góða og viðurkennda starfshætti.

Skýrslu Ríkisendurskoðunar má nálgast hér.