GANGBRAUT JÁ TAKK

Gangbraut Já takk er umferðarátak FÍB dagana 26. - 30. ágúst 2013, Nánar um átakið hér

Örugg leið í skólann!

Grunnskólar landsins eru að hefja vetrarstarfið þessa dagana og þá flykkjast þúsundir barna út á göturnar á leið í og úr skóla. Leiðir margra þeirra liggja yfir umferðargötur og við þær. Því er það mjög mikilvægt að allir aðrir vegfarendur, ekki síst þeir sem stjórna vélknúnum farartækjum, fari um með sérstakri gát þar sem barna er að vænta, sérstaklega þar sem þau þurfa að fara yfir umferðargötur. Af þessu tilefni vill FÍB vekja sérstaka athygli á þessum málum og hefur óskað eftir þátttöku almennings.

Það ámælisvert að mati FÍB hversu illa gönguleiðir yfir umferðargötur eru merktar hér á landi. Slæmar og óljósar merkingar við skóla og í grennd við þá hljóta að teljast sérstaklega  varhugaverðar. Skólabörnin eiga heimtingu á því að að bestu og öruggustu göngustaðirnir yfir umferðargötur séu skilgreindir og  merktir löglega og skýrt, svo ekkert fari á milli mála hjá börnunum sjálfum, né heldur ökumönnum sem um þessar götur aka.

Í grannlöndum okkar tíðkast að merkja gangbrautir rækilega auk þess sem ökumönnum er gefið það skýrt og greinilega til kynna þegar þeir nálgast gangbraut. Það er gert með yfirborðsmerkingum, umferðarmerkjum og skiltum sem minna á það að sýna beri sérstaka varúð. Í stærsta sveitarfélagi landsins, Reykjavík hefur sú stefna verið ríkjandi um langt árabil að merkja ekki gangbrautir á lögbundinn hátt með hvítum og svörtum þverröndum. Hins vegar hafa einskonar gervigangbrautir verið gerðar sem skapa fullkomna óvissu bæði gangandi og akandi um það hvort þar sé gangbraut eða ekki. Þetta telur FÍB afar misráðið. Stefán Agnar Finnsson, yfirverkfræðingur hjá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar sagði fyrir 8 mánuðum (21.des 2012,Visir) „Ég held að við munum fara í stefnumörkunarvinnu til að ákveða hvernig við viljum hafa þetta,".  Hvað hefur gerst á síðustu 8 mánuðum? Hefur stefnumörkun gangbrauta farið fram? Gervigangbrautunum fer allavega ekki fækkandi. 

Bæði zebrabrautirnar og gangbrautamerkin eru hluti tiltekins alþjóðlegs táknmáls. Það táknmál segir bæði akandi og gangandi að til staðar sé gangbraut yfir götu. Þar beri báðum akandi og gangandi –skylda til að sýna fyllstu aðgát.  
Sendu FÍB ljósmynd af gangbraut eða gervigangbraut sem þér finnst ógna öryggi þínu og þinna. Sérfræðingar FÍB í vegamálum skoða ljósmyndir út frá merkingum og öryggissjónarmiðum. Sérfræðingar FÍB koma athugasemdum á framfæri til ábyrgðaraðila vegamála í hverju bæjarfélagi fyrir sig með ósk um úrbætur. 
Smelltu hér til að senda okkur ljósmynd

 Gangbraut Já takk

Dæmi:Melaskóli 

Melaskoli Rvk

Neshagi: Ökumenn fá góðar skýringar og leiðbeingar í tíma að gangbraut sé framundan.
Neðri mynd: Furumelur/Neshagi, Gangbrautarskilti? vegmerkingar ? 

 Melaskoli gangbraut?


Hvernig eiga ökumenn að vita að hér fari gangandi um? 
Þarf slys til að ábygðaraðilar vakni og opni augun fyrir þessari rúllettu?
Hvað eiga börnin okkar að bíða lengi eftir úrbótum?
Er þetta komið til að vera fyrir komandi kynslóðir? 
Eru úrbætur fyrirhugaðar?  

 

Mannvitskyrsla Forgangur og öryggi gangandi vegfarenda á gönguþverunum