Göngu­brú á Sæbraut var sett upp í nótt

Umfangsmiklar lokanir voru á hluta Sæbrautar frá kl. 22 í gærkvöldi þegar ný göngu- og hjólabrú var hífð upp í heilu lagi og komið fyrir á stigahúsum sem reist hafði verið við Dugguvog og Snekkjuvog. Samtímis voru settar upp hæðarslár sitt hvoru megin við nýju brúna þar sem hæðin er takmörkuð við 4,8 metra og verður það framvegis. Vinnan fór fram að næturlagi til að hafa sem minnst áhrif á umferð. Opnað var aftur fyrir umferð á þessum kafla kl. 6 í morgun.

Bætir umferðaröryggi verulega

Nýja göngubrúin er um miðja vegu milli gatnamóta Sæbrautar við Súðavog annars vegar og Kleppsmýrarvegs hins vegar. Með henni verður til ný gönguleið milli Dugguvogs við Tranavog og Snekkjuvogs.

Brúnni er ætlað að bæta umferðaröryggi verulega fyrir vegfarendur milli nýrrar Vogabyggðar og Vogahverfis, ekki síst fyrir skólabörn í Vogaskóla.

Vegagerðin beinir þeim tilmælum til verktaka og flutningafyrirtækja að kynna þessar hæðatakmarkanir fyrir sínu starfsfólki. Ástæða er til þess að hvetja ökumenn stærri bíla til að setja niður palla á vörubílum, pakka saman bílkrönum og svo framvegis, svo ekki komi til óhappa eða slysa vegna hæðatakmarkananna.

Unnið við stigahús í framhaldinu

Þótt brúin sé komin á sinn stað heldur vinna við stigahúsin áfram. Gengið verður frá tengingum milli brúar og stigahúsa, sett upp lýsing og myndavélakerfi, gengið frá jarðvegi við stigahúsin og göngu- og hjólastígar malbikaðir. Lyftur verða síðan settar upp við báða brúarenda um næstu mánaðamót. Áætlað er að taka brúna í notkun í júní.

Sjá nánar á fibfrettir.is