Gríðarleg umferð um Hringveginn í ágúst

Enn heldur umferðin á Hringveginum áfram að aukast mjög mikið. Umferðin í ágúst á Hringveginum jókst um tæp átta prósent sem er gríðarlega mikil aukning. Samt ekki eins mikil og í fyrra þegar umferðin jókst um 13 prósent milli ára. Þetta kemur fram í tölum frá Vegagerðinni.

Umferðin gæti aukist um 10%

Nú fara meira en 100 þúsund bílar um 16 lykilteljara Vegagerðarinnar á degi hverjum á Hringveginum. Það stefnir í að umferðin í ár gæti aukist um 10 prósent.  Umferðin jókst um 7,9% í ágúst miðað við sama mánuð á síðasta ári. Mest jókst umferðin um mælisnið á Suðurlandi eða um tæp 15% en minnst jókst umferðin um Vesturland eða um 5,4%. 

Þetta er talsvert mikil aukning en hún er þó tæplega helmingi minni en á síðasta ári þegar umferðin jókst um 13% milli ágúst 2016 og 2015.Hvað einstaka mælisnið varðar þá jókst umferðin mest um mælisnið á Mýrdalssandi en minnst um mælisnið á Mývatnsheiði eða um 2,4%.

Þá segir ennfremur að aldrei hafa jafn mörg ökutæki mælst í ágúst á Hringveginum en samanlögð meðalumferð hvern dag fór í fyrsta sinn yfir 100 þúsund bíla markið og gott betur en að jafnaði fóru tæplega 105 þús. ökutæki á sólarhring um mælisniðin 16.

Nú hefur umferðin aukist að jafnaði um 3,8%, frá árinu 2005, en síðustu 5 ár hefur aukningin verið um 7%. 

Umferðin hefur nú aukist um 10,9% það sem af er ári miðað við sama tímabil á síðasta ári. Þetta er gríðarleg aukning og aðeins einu sinni áður (frá því að þessi samantekt hófst) hefur mælst meiri aukning miðað við árstíma en það var á síðasta ári en þá var aukningin orðin 12,6%. 

Það sem af er ári hefur umferðin aukist mest um Suðurland en minnst um Vesturland eða um 8,5%. 

Umferð eftir vikudögum
Umferð hefur aukist mikið alla vikudaga en hlutfallslega mest á þriðjudögum eða um 12,8% sem eru að jafnaði umferðarminnstu dagarnir. En minnst hefur aukningin, það sem af er ári, verið á sunnudögum eða um 9,5%. Umferðarmestu dagarnir eru að jafnaði föstudagar.