Hægir á aukningu umferðarinnar á Hringveginum

Umferðin á Hringveginum í nýliðnum júlímánuði jókst um 2,6 prósent sem er minni aukning en verið hefur undanfarin ár. Nú má reikna með að umferðin á Hringveginum í ár aukist um 3 prósent sem er minni aukning en verið hefur.

Umferð í nýliðnum mánuði jókst um 2,6% yfir 16 lykilteljara Vegagerðarinnar á Hringvegi, borið saman við sama mánuð á síðasta ári.  Þetta er minnsta aukning í júlí mánuði frá árinu 2012, en telst engu að síður nokkur aukning en mætti telja hæfilega.

Mest jókst umferð um lykilteljara á Suðurlandi eða um 9,3% en 2,4% samdráttur mældist um lykilteljara á Norðurlandi.

Nú hefur umferðin vaxið um 4,3% frá áramótum miðað við sama tímabil á síðasta ári. Þessi aukning er sömuleiðis sú minnsta frá árinu 2012 en líkt og milli mánaða má telja hana hæfilega.

Mest hefur umferð vaxið á Suðurlandi eða um 9,8% en minnst hefur aukningin orðið um Norðurland eða 1,7% aukning.

Frá áramótum hefur umferðin aukist hlutfallslega mest á fimmtudögum eða um 6,3% en 2,0% samdráttur er í umferð á sunnudögum.  Langmest er ekið á föstudögum en minnst á þriðjudögum. Þetta umferðarminnstur hefur verið viðvarandi frá því að þessar athuganir hófust.

Gert er ráð fyrir hóflegri aukningu í umferð á Hringvegi eða um 3%.  Búist er við því að umferðin aukist mest á Suðurland eða um 6% en standi í stað á Norðurlandi þ.e.a.s. að engin aukning verði þar.