Heimsending á reynsluakstri

Bílaum­boðið BL hef­ur nú tekið upp þá nýbreytni að bjóða viðskipta­vin­um sem kjósa að fá send­an nýj­an sótthreinsaðan reynsluakst­urs­bíl heim að dyr­um í stað þess að gera sér ferð í sýn­ing­ar­sali fyr­ir­tæk­is­ins við Sæv­ar­höfða, Hest­háls eða Kaup­tún.

,,Ég held ég geti sagt það að upphaflega hugmyndin af þessu hafi verið vegna covid-19. Þetta vatt síðan upp á sig, við ákváðum að prófa, og þetta er kannski komið til að vera. Ef fólk vill fá bílinn heim þá mætum við þeim óskum.  Þetta er nýlunda, fólk vill aukna þjónustu og við erum að koma til móts við þarfir og óskir neytenda,“ sagði Sigurjón Andrésson markaðsstjóri markaðssviðs hjá BL við FÍB.

Aðspurður hvernig óskum fólks úti á landi yrði mætt sagði Sigurjón að BL væri með þjónustuaðila víða á landsbyggðinni. ,,Við munum gera okkar allra besta í þeim efnum og taka hvert mál fyrir sig.“

Láns­tím­inn er eins og venja er varðandi reynsluakst­ur nýrra bíla og ákveðinn í sam­ráði við viðkom­andi söluráðgjafa hverju sinni.

Auk þess sem BL býður upp á heimsend­ingu á reynsluakst­urs­bíl­um býðst viðskipta­vin­um einnig að fá sölu­skoðun og verðmat á nú­ver­andi heim­il­is­bíl meðan á reynsluakstr­in­um stend­ur.

All­ar nán­ari upp­lýs­ing­ar um fyr­ir­komu­lag heimsend­ing­arþjón­ust­unn­ar eru að finna á vefsíðu fyr­ir­tæk­is­ins.