Hekla hf innkallar Mitsubishi

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Heklu um innkallanir Mitsubishi bifreiðum. Um er að ræða þrjár innkallanir: 

Mitsubishi ASX árgerð 2011 til 2015 
Þurrkumótor að framan. 
Vatn getur komist í þurrkumótor og hann orðið óvirkur. 
Viðgerð felst í því að skipt verður um þurrkumótor. 
Á Íslandi er vitað um 14 ASX bifreiðar sem innköllunin á við um. 

Mitsubishi ASX árgerð 2011 til 2015 og Pajero Sport árgerð 2009 til 2014 
Pumpa á afturhlera. 
Hætta er á að endastykki á pumpu fyrir afturhlera losni. Slys geta orðið á fólki ef endastykkið lendir á fólk og/eða ef afturhleri fellur skyndilega niður. 
Viðgerð fellst í því að skipt verður um báðar pumpur á afturhlera. 
Á Íslandi eru 14 ASX bifreiðar og 1 Pajero Sport sem innköllunina á við um. 

Mitsubishi i-MiEV árgerð 2010 til 2013 
Púðahylki fyrir loftpúða farþegamegin. 
Ef árekstur verður og loftpúði blæs út, geta málmflísar úr púðahylki losnað og valdið meiðslum á farþegum. Viðgerð felur í sér að skipt verður um púðahylki. Einungis er um að ræða loftpúða frá framleiðendanum Takata og hefur galli aðeins komið fram í löndum þar sem raka- og hitastig er mjög hátt og er óþekktur í Evrópu. Á Íslandi er vitað um 23 bíla sem innköllunin á við um. 

Eigendur viðkomandi bifreiða munu fá bréf vegna innköllunar á næstu dögum.

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband Heklu ef þeir eru í vafa.