Hjálparþjónusta FÍB um verslunamannahelgina

The image “http://www.fib.is/myndir/AdstRAV.jpg” cannot be displayed, because it contains errors.
Líkt og undanfarin 55 ár verður FÍB með þjónustuvakt um verslunarmannahelgina fyrir bíleigendur. Hjálparþjónusta FÍB miðast við að aðstoða bíleigendur á ferðalagi sem þurfa á þjónustu bílaverkstæðis að halda eða vantar varahlut. FÍB aðstoðarbílar verða á fjölförnustu leiðum og umboðsmenn félagsins um land allt eru í viðbragðsstöðu.
 The image “http://www.fib.is/myndir/TveirAudilow.jpg” cannot be displayed, because it contains errors.
Hekla hf hefur góðsfúslega lánað FÍB Aðstoð Audi-bíla yfir verslunarmannahelgina. Þeir ásamt öðrum farartækjum FÍB Aðstoðar verða vegfarendum til halds og trausts um helgina.
FÍB hefur, eins og undangengnar verslunarmannahelgar, kallað út liðsauka aðstoðarbíla sem verða á vegum landsins, félagsmönnum og vegfarendum til halds og trausts. Hekla hf. hefur góðfúslega lánað félaginu nýja bíla af Audi gerð sem þessir auka-liðsmenn FÍB-Aðstoðar verða á um verslunarmannahelgina og kann félagið fyrirtækinu bestu þakkir fyrir velvild þess í garð bifreiðaeigenda yfir mestu ferðahelgi ársins.
Víða um land eru verkstæði opin vegna neyðarþjónustu og bílaumboð og stærri varahlutasalar hafa góðfúslega skipulagt bakvaktir vegna varahlutaafgreiðslu fyrir milligöngu FÍB. Skrifstofa FÍB, sími 414-99-99, hefur milligöngu varðandi aðstoðarbeiðnir um verslunarmannahelgina og þar verður vakt frá föstudegi til síðdegis á mánudag. Þegar ekki er vakt á skrifstofunni svarar FÍB AÐSTOÐ í síma 5-112-112.
FÍB óskar öllum vegfarendum góðrar ferðar um verslunarmannahelgina og ráðleggur bíleigendum að yfirfara bíla sína áður en lagt er upp í langferð. Nokkur ráð um hvernig best er að undirbúa bílinn fyrir langferð er að finna hér á fréttavef FÍB undir liðnum -Upplýsingar.
Góða ferð.
The image “http://www.fib.is/myndir/GulirAdstodarblow.jpg” cannot be displayed, because it contains errors.The image “http://www.fib.is/myndir/Rapparinn.jpg” cannot be displayed, because it contains errors.