Hjól í huga!

FÍB í samstarfi við verkefnið Hjólabætum Ísland, kynnti nú í morgun fyrir blaða- og fréttamönnum hið nýja umferðaröryggisátak Hjól í huga. Auk fréttamanna voru viðstaddir kynninguna sjúkraflutningamenn frá slökkviliðihöfuðborgarinnar, lögreglumenn sem komu til fundarins á reiðhjólum og mótorhjólum, fulltrúar verkefnisins Hjólabætum Ísland, frá Samgöngustofu og rannsóknanefnd samgönguslysa. Kynningin fór fram í starfsstöð FÍB að Skúlagötu 19 og henni stýrði Kristín Sigurðardóttir slysa- og bráðalæknir, en Kristín situr í stjórn FÍB.

Myndbandið vakti talsverða athygli fjölmiðla þegar verið var að taka það í miðbæ Reykjavíkur fyrir skömmu og er þess vænst að fullgert veki það og boðskapur þess ekki síður athygli..

Meginmarkmið átaksins Hjól í huga er að efla vitund ökumanna um hjólafólkið í umferðinni – hina óvörðu vegfarendur á reiðhjólum og vélhjólum. Myndbandið sýnir mann á reiðhjóli sem allir taka strax eftir vegna þess að hann er nakinn. Maður á hjóli á ekki að þurfa að vera nakinn til að aðrir vegfarendur taki eftir honum. En nektin undirstrikar jafnframt  hversu viðkvæm hin óvarða manneskja er í umferðinni og hversu lítið má út af bera til að hún verði fyrir líkams- eða jafnvel fjörtjóni. Þetta skyldu ökumenn hafa í huga, en líka og ekki síður hjólreiðamennirnir sjálfir.

Myndbandið verður sýnt á næstunni á íslenskum sjónvarpsstöðvum. Hægt verður að nálgast það á heimasíðu og facebook-síðu FÍB. Jafnframt eru komnir í dreifingu 50 þúsund litlir gulir sjálflímandi viðvörunarþríhyrningar til að líma á baksýnisspegla bíla eða annarsstaðar í sjónsviði ökumanna til að minna hina akandi á að hafa hjólin í huga. Fyrstu límmiðarnir sem voru settir í bíla á Íslandi voru límdir í þá í lok fundarins.

Límmiða er hægt að nálgast á eftirfarandi stöðum: 

FÍB, Skúlagötu 19, Reykjavík
10 - 11 verslanir um land allt
Flestum reiðhjóla- og bifhjólaverslunum landsins

Upphaflega fæddist hugmyndin að átakinu hjá breskum vegaþjónustutmanni, sarfsmanni AA, hins breska systurfélags FÍB. Vegaþjónustumaðurinn fékk hugmyndina að átakinu eftir að mótorhjólahjólamaður, kunningi hans, hafði látið lífið í umferðarslysi. AA stóð síðan að fyrsta Think Bike! umferðarátakinu sem hófst í marsmánuði í fyrra. Átakið vakta mikla athygli í Bretlandi og í framhaldinu tóku heimssamtök bifreiðaeigendafélaga, FIA hugmyndina upp á sína arma og styðja við Think Bike! herferðir um allan heim.

Daninn Jacob Bangsgaard er framkvæmdastjóri FIA í Evrópu, Mið-Austurlöndum og Afríku. Hann segir að Hjól í huga (Think Bike) átakið sé einstakt að því leyti hversu vel það nær að skila hinum mikilvæga boðskap sínum til almennings með góðri blöndu kímni, einfaldleika og alvöru. Það minni ökumenn á að muna alltaf eftir hinum viðkvæmu vegfarendum í umferðinni, ekki síst í þéttri umferð miðborganna þar sem allt að þriðjungur vegfarenda eru á ferðinni á reiðhjólum og vélhjólum.