Hjólbarðakönnun apríl 2013

FÍB hefur kannað verð á sumarhjólbörðum. Könnunin var gerð í vikunni sem nú er að líða (16. viku). Könnunin var gerð þannig að haft var símasamband við söluaðila hjólbarða um allt land og þeim síðan sendar fyrirspurnir um verð á tveimur algengum stærðum hjólbarða fyrir fólksbifreiðar og jeppa/jepplinga. Beðið var annarsvegar um verð á sumarhjólbörðum fyrir fólksbíla, stærð 185 / 65 R15  og hins vegar verð sumarhjólbarða fyrir jeppa/jepplinga af stærð 235 / 65 R17.

Þar sem könnun þessi er einungis verðkönnun felst engin afstaða til gæða hjólbarðanna að öðru leyti en því sem felst í ESB-merkingum hjólbarðanna þar sem það á við. Allir nýir fólksbílahjólbarðar sem til sölu eru á evrópska efnahagssvæðinu eiga að vera með þessum ESB merkingum til að neytendur geti áttað síg á því í sjónhendingu hversu hávær hjólbarðinn er í akstri, hversu vel hann ryður frá sér vatni og hversu létt hann rennur á vegi og þannig séð hvort hann krefst mikils eldsneytis. Nánar um ESB-merkingar hér.

Af þeim 22 söluaðilum sem svöruðu könnun FÍB voru tveir sem ekki áttu hjólbarða til í þeim stærðum sem um var beðið og einn söluaðili hafnaði þátttöku í könnuninni. Marktæk svör bárust þannig frá 19 söluaðilum um verð á sumarhjólbörðum. Verð í könnuninni eru listaverð og án afsláttar en margir söluaðilar bjóða margvíslega afsætti. FÍB er með góða afslætti hjá mörgum söluaðilum. Neytendur eru hvattir til að spyrja um afslátt.

Það vekur athygli að sumir söluaðilar og innflytjendur hjólbarða virðast meðvitað eða ómeðvitað ekki þekkja til tilskipunar ESB um dekkjamerkingar sem tók gildi hér á landi 1 nóvember 2012. Samkvæmt reglunum er seljendum hjólbarða skylt hafa upplýsingar um samræmdar gæðaprófanir hjólbarða á öllum hjólbörðum sem innfluttir hafa verið eftir 1. nóvember 2012.  Merkingarnar eiga að vera límdar á hjólbarðana og gefa staðlaðar upplýsingar um sparneytni og grip í bleytu með mismunandi bókstöfum og upplýsingar um veghljóð í desibelum (dB).  Merkingarnar gera kaupandanum kleift að bera saman gæði, kosti og öryggi hjólbarða. Einnig vekur athygli að ekki bárust upplýsingar um aldur hjólbarðanna frá öllum söluaðilum.   

Verðkönnun FÍB á hjólbörðum - smelltu hér