Hlaut hæstu einkunn hjá Euro NCAP

 Nýr Land Rover Defender 110 hlaut á dögunum hæstu einkunn hjá Euro NCAP fyrir framúrskarandi öryggi. Meðal þátta í einkunninni má nefna 85 stig fyrir góða vernd fullorðinna og barna í farþegarýminu.

 Bíllinn fékk 79 stig fyrir góðan öryggisaðstoðarbúnað og hlaut Defender í aðaleinkunn 5 stjörnur fyrir gott alhliða öryggi, sem innifelur m.a. sjálfvirka neyðarhemlun til að varna árekstri við aðra bíla, fótgangandi eða hjólandi vegfarendur sem búnaðurinn ber kennsl á.

Defender hefur frá því að bíllinn var kynntur unnið til 28 alþjóðlegra viðurkenninga og eru fimm stjörnur Euro NCAP enn ein skrautfjöðrin í hatt hönnuða bílsins sem er sterkasti og öflugasti Defender sem Land Rover hefur smíðað frá upphafi.

Sem dæmi má nefna sérstaklega styrktan undirvagn og yfirbyggingu sem hvort tveggja er hannað til þess að takast á við sérstaklega erfiðar aðstæður af miklu öryggi í þágu ökumanns og farþega, hvort sem er utan alfaraleiða eða krefjandi umferð í þéttbýli.