Hlöður teknar í notkun á Landakoti og Kleppi

Settar hafa verið upp ON hleðslur fyrir rafbíla á tveimur starfsstöðvum Landspítala; á Landakoti og Kleppi. Um er að ræða tilraunaverkefni með Landspítala og er það hluti af umhverfisstefnu og loftslagsmarkmiðum hans.

Landspítalinn leggur þannig sitt af mörkum við orkuskipti í samgöngum með því að auðvelda starfsfólki aðgang að hleðslum fyrir rafbíla á nokkrum starfsstöðvum sínum. Síðar í sumar verða ON hlöður settar upp við starfsstöðvar spítalans við Hringbraut og í Fossvogi.

ON sér um uppsetningu og rekstur stöðvanna sem allar gerðir rafbíla geta nýtt sér. Starfsfólk Landspítala og aðrir rafbílaeigendur þurfa að sækja um ON lykil á vefsíðu ON til þess að geta nýtt sér hleðslurnar. Þær verða gjaldfrjálsar fyrst um sinn, en í haust þegar allir staðir eru komnir upp greiða viðskiptavinir fyrir þjónustuna.

Hleðslurnar eru 22kW en sérhver rafbíll stýrir hraða hleðslunnar sjálfur. Flestar rafbílategundir taka inn á sig ca. 6-7kWh á klst. og eru því um 4-5 klst. að fullhlaða sig í þessum hleðslum.

Það er sameiginleg skoðun ON og Landspítala að mikilvægt er að hraða orkuskiptum í samgöngum með því að efla innviði með þéttu neti hleðslustöðva og þróunin hefur verið jákvæð síðustu misseri.

Mynd: Hafrún Þorvaldsdóttir, sölustjóri ON og Ingólfur Þórisson, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Landspítala taka formlega í notkun hlöðuna við Landakot. Guðjón Kristjánsson, starfsmaður Landspítala hlóð fyrstu hleðsluna á rafbíl sinn.