Hlutdeild nýorkubíla rúm 75% það sem af er árinu

Nýskráningar fólksbifreiða það sem af er árinu eru 7.220 og er það aukning um 21,3% í samanburði við sama tíma á síðasta ári. Þá voru nýskráningar 5.954 að því er fram kemur í tölum frá Bílgreinasambandinu. Flestar nýskráningar eru til ökutækjaleiga, alls 60%, og 40% til almennra notkunar.

Hlutdeild rafmagnsbíla í heildar nýskráningum það sem af er á árinu nemur 27,4%, alls 1.979 bílar. Hybrid-bílar koma í öðru sæti með 25,6% hlutdeild, alls 1.850 bílar, og tengiltvinnbílar koma í þriðja sæti 22,8% hlutdeild, alls 1.648 bílar. Hlutdeild nýorkubíla er því alls rúm 75%.

KIA er söluhæsta bílategundin það sem af er árinu. Nýskráningar í þessu bílamerki eru alls 1.392 sem er um 19,3% hlutdeild. Toyota kemur næst með 908 bíla og Tesla kemur í þriðja sæti með 598 bíla.