Hlutdeild rafbíla 38,2% það sem af er árinu

Það sem af er árinu eru nýskráningar fólksbifreiða alls 10.262 en voru á sama tíma í fyrra 9.327. Aukningin nemur 10%. Alls hafa farið 5.590 bifreiðar til bílaleiga og 5.064 til almennra notkunar. Þegar einstakir mánuðir í bílasölunni eru skoðaðir var hún mest í maí en þá seldust alls 2.578 bílar en í júní seldust alls 2.559 bílar. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Bílgreinasambandinu.

Hlutdeild rafbíla það sem af er árinu er 38,2% en alls hafa selst 3.921 bílar. Hybrid-bílar koma í öðru sæti með 21,2% hlutdeild, alls 2.170 bílar. Dísil-bílar koma síðan í þriðja sætinu, hlutdeild þeirra er 16,3%, alls 1.673 bílar. Alls hafa 1.391 bensín bílar selst og 1.102 tengiltvinnbílar.

Toyota er söluhæsta bílategundin með 2.021 nýskráningar sem er um 19,7% hlutdeild á markaðnum. Í Teslu eru 1.505 nýskráningar og í þriðja sæti kemur Kia með 1.365 bíla.