Honda Jazz (Fit) bestu kaupin

http://www.fib.is/myndir/Honda_fit.jpg
Honda Fit, eða Jazz eins og hann nefnist í Evrópu.

Consumer Reports segir að Honda Jazz eða Fit, eins og bíllinn nefnist í Bandaríkjunum sé bestu kaupin í nýjum bílaflokki þar vestra. Innan þess flokks eru sparneytnir smábílar sem kosta milli 14 og 16 þúsund dollara. Tímaritið bar saman nokkra sambærilega bíla saman og þetta varð niðurstaðan.

Samkvæmt eyðslumælingu tímaritsins eyddi bíllinn með sjálfskiptingu um 7,8 l á hundrað km en sá handskipti eyddi um 7,4 l á hundraðið. Reynsluakstursfólki Consumer Reports þótti bíllinn skemmtilegur í akstri þótt ekki væri hann sá alskemmtilegasti samanburðarbílanna og sérlega vel hannaður með tilliti til innanrýmis og notagildis. Fyrir áreiðanleika, árekstursþol og almenna ánægju fékk hann hins vegar hæstu einkunnina. Næst bestur þótti svo Nissan Versa og í þriðja sætinu varð Kia Rio.