Hraðhleðsla fyrir rafbíla í Þorkákshöfn

Orka náttúrunnar (ON) hefur reist hlöðu með hraðhleðslu fyrir rafbíla í Þorlákshöfn. Gunnsteinn R. Ómarsson bæjarstjóri í Ölfusi tók hana formlega í vikunni og hlóð rafbíl sem sveitarfélagið nýtir í þágu félagsþjónustunnar. Hlöður ON með hraðhleðslum eru orðnar 28 talsins og verður allur hringvegurinn opinn fyrir páska.

Með hlöðunni í Þorlákshöfn opnast nýir möguleikar fyrir bæjarbúa rétt eins og þá sem sækja bæinn heim. Talsvert er um að fólk í bænum sæki vinnu annarsstaðar og auðveldar nýja hlaðan fólki að ferðast með umhverfisvænni og ódýrari hætti. Nokkrar hlöður eru líka í grenndinni; á Selfossi, í Hveragerði, við Hellisheiðarvirkjun og á Minni Borg í Grímsnesi.

„Sveitarfélagið hefur metnað í umhverfismálum og við fögnum þessu framtaki sem auðveldar íbúum að skipta yfir í rafmagn í samgöngum,“ segir Gunnsteinn bæjarstjóri. „Við leggjum áherslu á að auðlindir séu nýttar með sjálfbærum hætti. Hellisheiðarvirkjun Orku náttúrunnar er í sveitarfélaginu Ölfusi og það er ánægjulegt og mikilvægt að nú getum við notið afurða hennar með þessum hætti hér í Þorlákshöfn,“ bætir Gunnsteinn við.

ON hefur einsett sér að opna allan hringveginn fyrir rafbílaeigendum með því að varða hann hlöðum. Framkvæmdir við hlöður á Mývatni og í Nesjum við Hornafjörð eru langt komnar. Þá stendur einn staður eftir, það eru Skjöldólfsstaðir á Jökuldal. Þar er ON reyndar búin að setja upp hlöðu með hefðbundinni (AC) hleðslu. Einungis er einfasa rafmagn á þessum slóðum. Þess vegna þarf að útvega viðeigandi búnað til að geta hlaðið hratt á þessum stað og sú lausn er í vinnslu.