Hugmyndasamkeppni FIA í Evrópu

Ertu á aldrinum 18-22 ára? Hvernig verður umferðin í framtíðinni? Hvernig viltu að hún verði?

Þann 1. febrúar hefst hugmyndasamkeppni 1. svæðissambands FIA meðal ungs fólks í Evrópu á aldrinum 18-22 ára. Lýst er eftir hugmyndum unga fólksins um fólksflutninga og umferðina almennt og hvernig hún er að breytast og á eftir að verða í næstu framtíð.

Hefurðu fengið nóg af umferðinni í heimabæ þínum?
Finnst þér ferðakostnaðurinn vera of mikill?
Óttastu slæm áhrif umferðar á loftslag og hnattræna hlýnun?
Ertu sammála því að við því þurfi að bregðast?
 

Ef þú ert 18-22 ára að aldri og rík(ur) að hugmyndum um bætta fólksflutninga og umferð sem gerbreytt gætu hreyfanleika fólks í bæjum og borgum Evrópu (og annarsstaðar í heiminum) – þá er þessi samkeppni rétti vettvangurinn fyrir þig.  

Taktu þátt í samkeppni ungs fólks um alla Evrópu sem vill koma góðum og frumlegum hugmyndum á framfæri sem gætu gert hreyfanleika fólks og fólksflutninga auðveldari og léttbærari. Þú hefur tækifæri til að vinna með alþjóðlegum sérfræðingum á sviðum umferðar og hreyfanleika og koma fram með heildarhugmynd sem gæti breytt heimsmyndinni. Einföldustu hugmyndir geta breytti lífi fólks til hins betra og haft jákvæð áhrif á samfélagið.  Við hjá 1. svæðissambandi FIA teljum að þín sýn og sköpunargáfa sé lykillinn sem leysi úr læðingi nýja hugsun og hugmyndir um samgöngur og hreyfanleika nú og í framtíðinni.

Ef dómararnir okkar hrífast af því sem þú hefur að segja, gætir þú unnið - ekki bara ferðir til Brussel og Helsinki - heldur líka aðgöngumiða á úrslitakappaksturinn í E-Formúlunni í London.

Er því eftir nokkru að bíða? Komdu hugmynd þinni á framfæri núna!

Frekari upplýsingar um keppnina, reglur henna rog skilmála er að finna á http://genius.fiaregion1.com/

FIA er heimssamtök bifreiðaeigendafélaga og bifreiðaíþróttafélaga. Flestöll systurfélög FÍB eru sameinuð innan 1. svæðissambands FIA og FÍB er þeirra á meðal. Höfuðstövar 1. svæðissambands FIA eru í Brussel.  Innan 1. svæðissambandsins eru 111 bifreiðaeigenda- og ferðafélög með 38 milljón félagsmenn. Sambandssvæðið nær yfir alla Evrópu, Mið-Austurlönd og Afríku. FIA er málsvari félagsmanna þátttakenda í umferð af hverskonar tagi, hvort heldur þeir eru akandi, hjólandi, gangandi eða sem farþegar í hverskonar almannasamgöngum. Meginmarkmið FIA er að tryggja að allar samgöngur séu sem öruggastar, þær séu skilvirkar, sjálfbærar og á hóflegu verði. Þess vegna vinnur 1. svæðissamband FIA og aðildarfélög þess að umferðaröryggismálum, neytendavernd og sjálfbærum samgöngum.