Hvatt til upplýstrar umræðu um umhverfisáhrif bíla

Aðalfundur Bílgreinasambands Íslands var haldin í gær í Húsi atvinnulífsins og var fundurinn vel sóttur og málefnalegur. Á aðalfundinum var ein ályktun samþykkt er snýr að tækniþróun bíla og þá allra bíla,bæði nýorkubíla sem og bíla sem knúnir eru áfram af jarðefnaeldsneyti.

Öfgafull umræða og ranghugmyndir virðast hafa fengið byr undir vængi frá hinum ýmsu aðilum í þjóðfélaginu sem ganga út útá að bílar sem knúnir eru áfram með bensín og dísil séu að hverfa af markaði sökum þess að þeir mengi meira en allt annað sem að sjálfsögðu er langt frá veruleikanum eins og sannast best með þeim vélum sem eru komnar í nýja bíla og eru á leiðinni frá framleiðendum.

Ályktun Bílgreinasambandsins sem samþykkt var á aðalfundinum í gær er eftirfarandi:

Aðalfundur Bílgreinasambandsins, er haldinn var í Húsi atvinnulífsins fimmtudaginn 12. apríl 2018, hvetur upplýstrar umræðu um umhverfisáhrif bíla þannig að hún taki mið af nýrri framþróun tæknilausna.

Umræðan í dag beinist eðlilega mjög að rafbílavæðingu sem er afar mikilvæg, ekki síst vegna okkar hreinu raforku, en koltvíoxíðlosun bifreiða hér á landi er um 4% af heildar CO2 losun landsmanna.  Hins vegar má ekki líta fram hjá þeirri umbyltingu sem nú á sér stað í þróun dísil- og bensínvéla. Losun níturoxíðs nýrra bíla er hverfandi, auk þess sem nýjustu dísilbílarnir er útbúnir sérstökum síum sem fjarlægja útblástursefni er valda svif- og reykmengun.

Þessi tækniþróun er því lykill að lausn þess að draga enn frekar úr mengun af völdum bílaumferðar.

 

Bifreiðar eru meðal forsendna efnahagslegra framfara og lífsgæða. Huga þarf að sem bestu rekstrarumhverfi fyrir þá sem kjósa að eiga bíla samhliða því að gera sífellt meiri umhverfiskröfur til bifreiða.  Í því sambandi er vert að minna á að nýir bílar, sem allir uppfylla Euro 6 staðalinn, eru miklu hreinni kostur frá umhverfissjónarmiði en eldri gerðir bíla.   

Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa hélt Guðmundur F. Úlfarsson, prófessor í samgönguverkfræði við Umhverfis- og byggingarverkfræðideild Háskóla Íslands, afar fróðlegt og skemmtilegt erindi undir fyrirsögninni „Framtíðarsýn á samgöngur“ þar sem hann ræðir þróun samgangna á landi. Bendi hann þar á afar athyglisverðar staðreyndir með dæmum um rangar hugmyndir og ákvarðanir varðandi samgöngur, samgöngumannvirki og þéttingu byggðar.

Stjórn Bílgreinasambandsins á næsta starfsári skipa eftirtaldir einstaklingar:

Formaður var kjörinn Jón Trausti Ólafsson - ASKJA

Áskell Gíslason  - Höldur

Baldur Davíðsson - Armur

Bjarni Benediktsson - Víkurvagnar

Einar Sigurðsson – Bifreiðaverkstæði Reykjavíkur

Friðbert Friðbertsson - HEKLA

Skúli K. Skúlason - BL

Varamenn:

Benedikt Eyjólfsson – Bílabúð Benna

Guðmundur Ingi Skúlason - Kistufell