Hyundai hefur mikla trú á vetnisbílum

Kínversk stjórnvöld hafa ákveðið að styðja enn frekar við framleiðslu á vetnisbílum en gert hefur verið fram til þessa. Innleiða á nýja stefnu sem hefur það markmið að hvetja neytendur til að kaupa þessa bíla.

Kína er langstærsti markaðurinn fyrir nýorkubíla eins og tengiltvinnbíla- og vetniseldsneytisrafbíla. Alþjóðlegir bílaframleiðendur, þar á meðal Toyota Motor og Suður-kóreski bílaframleiðandinn Hyundai Motor, hafa þegar tilkynnt um áætlanir um nýtt upphaf í framleiðslu á vetnisbílum í Kína.

Vetnisbílar hafa átt undir högg að sækja á síðustu árum en fram kom á dögunum að markmið Hyundai er að snúa þeirri þróun við. Hyundai hyggst framleiða 700 þúsund vetnisbíla á næstu tíu árum.

Hyundai ætlar ekki að láta deigan síga í framleiðslu á vetnisbílum á næstu árum ef marka má markmið fyrirtækisins.

„Við höfum mikla trú á vetnisbílum sem eru á margan hátt hagstæðari en venjulegur rafbíll. Um gríðarlega fjárfestingu er að ræða en við erum bjartsýn og á henni einni saman er hægt að komast langt. Vetnisbílar hafa marga góða kosti og þeir menga minna en hreinir rafbílar,“ segir Sae-hoon Kim, yfirmaður eldsneytisfrumumiðstöðvar Hyundai Motor.

Kim hefur unnið að eldsneytisfrumutækni hjá Hyundai frá 2003 og stýrði teyminu sem framleiddi fyrsta framleiðslubifreið heims sem gengur fyrir vetni, byggð á vinsælum Tucson–jeppa fyrirtækisins. Árið 2018 stýrði hann kynningu á annarri kynslóð suður-kóreska bílaframleiðandans, sérhannaða eldsneytisfrumubifreiðinni NEXO.

Rekstur Hyundai gengur ágætlega en auðvitað hefur korónufaraldurinn sett strik í reikning eins og hjá öllum bílaframleiðendum í heiminum. Fyrirtækið hefur reynt eftir mætti að verja störfin en hjá Hyundai vinna yfir eitt hundað þúsund manns.