Hyundai i20 vann aftur Gullna stýri í fólksbílaflokki

Hin nýja kynslóð Hyundai i20 hlaut í liðinni viku Gullna stýrið hjá þýska dagblaðinu Bild am Sonntag sem birt er í nýjasta tölublaði Auto Bild. Með verðlaunum hlaut i20 þá umsögn að vera sá besti í verðflokki undir 25 þúsundum evra.

Stjórnandi bílaprófana hjá Auto Bild segir nýjan i20 í sérflokki í sínum fólksbílaflokki og gefi fyrirrennara sínum ekkert eftir þegar kemur að gæðum og skemmtilegum aksturseiginleikum, en þess má geta að fráfarandi kynslóð i20 hlaut einnig Gullna stýrið árið 2015. Nýr i20 er væntanlegur til BL í mars.

„Með nýjum i20 hefur Hyundai sett nýjar viðmiðanir í hönnun og framleiðslu fólksbíla í sínum verðflokki þar sem hönnuðirnir hafa lagt mikla vinnu í öll smáatriðin. Maður finnur greinilega hversu lipur bíllinn er í allri meðhöndlun og 48 volta tvinnkerfið  er til fyrirmyndar. Hyundai i20 er eldsnöggur af stað ólíkt því sem maður á að venjast í hefðbundnum túrbóvélum, og sjö gíra gírskiptingin vinnur sérlega vel með tvinntækninni,“ segir Andreas May, yfirmaður prófana og tæknimála hjá Auto Bild.