Hyundai merki ársins

Hyundai Motor er farsælasta „merki ársins 2018“ (Brand of the Year 2018) að mati yfirdómnefndar Red Dot Design Award sem tilkynnt hefur fyrirtækinu um aðalverðlaunin í ár sem afhent verða við hátíðlega athöfn í Berlín þann 26. október.

Þetta eru ein fjölmargra verðlauna sem Hyundai hafa hlotnast frá Red Dod í gegnum tíðina fyrir skapandi, spennandi og frumlega hönnun. Þeirra á meðal eru hönnunarverðlaun Red Dot fyrir i-fólksbílalínuna þar sem allar gerðir hafa hlotið verðlaun Red Dot, IONIQ-þrenninguna, borgarsportjeppann Kona, sem nú er einnig að koma sem 100% rafbíll og loks nýja rafknúna vetnisbílinn Nexo sem margir bíða eftir í ofvæni að komi á markað.

Red Dot veitir árlega mikinn fjölda verðlauna fyrir framúrskarandi hönnun ólíkra framleiðsluvara, en árlega leggja dómnefndir Red Dot mat á um fimm þúsund vörur frá um það bil tvö þúsund framleiðendum áður en í ljós kemur hvaða aðilar standa upp úr í hverjum flokki. Red Dot er í dag umfangsmesta alþjóðlega samkeppni heims á sviði vöruhönnunar.

Fjölbreytt samstarf

Aðalverðlaun Red Dot sem Hyundai hlotnast í ár eru ekki síst til komin vegna farsællar hönnunarstefnu fyrirtækisins, vel úthugsaðra og útfærðra tæknilausna, mikilla gæðakrafna í framleiðslu og loks framúrskarandi mannauðs á sviði vörustjórnunar fyrir merkið sem gert hefur fjölda samstarfssamninga við ólík fyrirtæki sem skara fram úr hvert á sínu sviði. Samstarfið gerir Hyundai kleift að bjóða viðskiptavinum sínum framúrskarandi gæðabíla sem búnir eru fyrsta flokks búnaði, hvort sem er á sviði öryggis eða afþreyingar.

Dr. Peter Zec, prófessor, stofnandi og framkvæmdastjóri Red Dot Design Award, segir að Hyundai takist ítrekað að kynna viðskiptavinum sínum frumlegar og skapandi lausnir og því sé áhugavert að fylgjast með mikilli velgengni fyrirtækisins á mjög mettuðum markaði þar sem erfitt sé að skara fram úr.