Hyundai Motor eitt verðmætasta fyrirtæki heims

Hyundai Motor er í 35. sæti á lista yfir 40 verðmætustu fyrirtæki heims þriðja árið í röð. Fyrirtækið er nú metið á 13,2 milljarða bandaríkjadala sem er hækkun um 5,1% frá fyrra ári. Hyundai er nú sjötti verðmætasti bílaframleiðandi heims samkvæmt alþjóðlega greiningafyrirtækinu Interbrand.

„Við leggjum áherslu á að kynna okkur sem lífstílsfyrirtæki frekar en bílaframleiðandi við ímyndaruppbyggingu Hyundai sem gæðaframleiðanda. Sú stefnumörkun hefur aflað okkur nýrra tækifæra á neytendamarkaði þar sem krafist er mikilla gæða og tækniframfæra fyrir sanngjarnt verð,“ sagði Wonhong Cho, framkvæmdastjóri markaðsmála Hyundai, í tilefni af birtingu skýrslu Interbrand.

Alls seldi Hyundai Motor tæpar 4,9 milljónir ökutækja á síðasta ári, fleiri en margir helstu framleiðenda heims og hefur fyrirtækið fjórfaldað söluna síðan 2005.

 Auk þess að varveita gott orðspor fyrirtækisins meðal neytenda með sölu á áreiðanlegum, hagkvæmum og sparneytnum bílum vinnur Hyundai einnig að því að styrkja stöðu sína frekar á jepplingamarkaði með nýja sportjeppanum Kona sem fengið hefur mjög góðar móttökur hjá viðskiptavinum fyrirtækisins.

Nú þegar eru komnar meira en tíu þúsund pantanir í Kona sem nýlega fór í sölu á helstu lykilmörkuðum. Þá hefur Hyundai einnig sett i30 á markað í sérstakri sportútgáfu sem ber heitið i30N sem án efa á eftir að láta að sér kveða í alþjóðlega ökusportinu framundan.

Mikil gerjun hjá Hyundai

Mikið þróunarstarf á sér stað um þessar mundir hjá Hyundai á sviði sjálfbærra samgangna og hyggst fyrirtækið kynna fimmtán græna bíla fyrir árið 2020. Liður í því markmiði er IONIQ sem kom á markað fyrr á þessu ári en hann er boðinn í þremur mismunandi umhverfisvænum útfærslum og fljótlega er svo von á nýjum og rafknúnum vetnisbíl. Ennfremur vinnur Hyundai á kynningu á sjálfakandi bílum sem von er á innan fárra ára.