Hyundai seldi á heimsvísu 3,94 milljónir bíla

Hyundai Motor seldi nærri 519 þúsund bifreiðar (518.566) á síðasta ári í Evrópu, 0,5% fleiri en 2021. Hlutdeild fyrirtækisins á markaðnum nam 4,6 prósentum og hefur aldrei verið meiri en nú, sér í lagi á Spáni, Ítalíu, Frakklandi og Bretlandi. Árangurinn má ekki síst rekja til mikillar sölu á losunarlausum bílum Hyundai sem jókst um 19% á Evrópumarkaði.  

Mikil eftirspurn eftir rafbílum

Þrátt fyrir að síðasta ár hafi einkennst af ákveðinni óvissu á bílaiðnaði hélt Hyundai Motor áfram að bæta stöðu sína um alla Evrópu og sigrast á flestum meginhindrunum með framúrskarandi vinnu söludeilda fyrirtækisins um alla Evrópu.

Á heimsvísu seldi Hyundai 3,94 milljónir bíla sem var aukning um 1,4% frá 2021 og var salan, eins og í Evrópu, að mestu drifin áfram af eftirspurn eftir rafbílum, þar sem rafbílar Hyundai eru þeir þriðju mest seldu í álfunni.

 Eins og annars staðar í Evrópu var mikil eftirspurn eftir Hyundai hér á landi á liðnu ári og voru yfir 1.400 bílar nýskráðir árinu, rúmlega 24% fleiri en 2021. Var Hyundai þriðji mest seldi bíllinn hér á landi 2022 með 8,5% markaðshlutdeild