Iðgjöld bílatrygginga gætu lækkað um 7 milljarða á ári

FÍB hefur reiknað út að tryggingafélögin gætu lækkað iðgjöld bílatrygginga hér á landi um 7 milljarða króna á ári en samt væri afkoma félaganna af viðskiptunum ágæt. Eftir sem áður væru íslenskir neytendur að borga hæstu iðgjöld bílatrygginga á Norðurlöndunum.

Miðað er við 20% lækkun iðgjaldanna í þessum útreikningum. Þá lækkun má telja hóflega með hliðsjón af því að þau eru 50-100% hærri hér en á hinum Norðurlöndunum þar sem allur kostnaður er svipaður.

Alls greiddu eigendur ökutækja 37 milljarða króna í iðgjöld bílatrygginga árið 2020. Fólksbílar eru 87% skráðra ökutækja og lendir þessi reikningur því að megninu til á heimilunum.

FÍB hefur um árabil gagnrýnt fákeppni milli tryggingafélaganna og mikla sjóðasöfnun með ofteknum iðgjöldum. Þá hefur FÍB nýlega bent á að þrátt fyrir mikla fækkun umferðarslysa undanfarin ár, þá hafa iðgjöld bílatrygginga hækkað jafnt og þétt allan tímann. Það sem af er þessu ári hafa þau hækkað um 6% og samtals um 44% á undanförnum fimm árum.

Ofteknu iðgjöldin leggja trygggingafélögin í bótasjóði sem þau ávaxta í eigin þágu. Um síðustu áramót námu bótasjóðir vegna allra bílatrygginga 55 milljörðum króna. Ekki er lengur þörf fyrir þessa miklu sjóðasöfnun til að mæta tjónsáhættu.

Langt er síðan Evrópusambandið breytti fyrirkomulagi reikningsskila tryggingafélaga með svokallaðri Solvency 2 reglugerð. Með þeirri breytingum er eigin fé tryggingafélaganna ætlað að mæta áhættu vegna tryggingastarfseminnar. Fyrir liggur að eiginfjárstaða þeirra er firnasterk og þau hafa því borð fyrir báru til að lækka iðgjöldin með því að hætta þessari miklu sjóðasöfnun.