Innkalla 269 Hyundai bifreiðar

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá BL ehf. varðandi innköllun á 269 Hyundai bifreiðum. Um er að ræða Santa FE bifreiðar framleiddar á árnunum 2012-2016.

Ástæða innköllunarinnar er sú að á sumum bílum virkar neyðar húddlás illa vegna stirðleika í vír sem gæti orsakað að hann virki ekki sem skildi ef bíll er keyrður með opið húdd. 

Viðkomandi bifreiðareigendur munu fá sent bréf vegna þessarar innköllunar á næstu dögum. 

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við BL.