Innkallanir frá BL og Tesla Motors

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá BL ehf  og Tesla Motors Iceland um innkallanir.

Í tilkynningu frá BL ehf  segir að innkalla þurfi 13 Isuzu D-Max, Crew Cab, 4x2 HR /4x4 model bifreiðar af árgerð 2018-2019. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að festingar á fjaðrablöðum geta brotnað.

Í tilkynningu  frá Tesla Motors Iceland ehf  kemur fram að innkalla þurfi 3 Tesla Model X bifreiðar af árgerð 2014 til 2016. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að vökvastýri virki ekki sem skyldi.

Viðkomandi bifreiðareigandum verður tilkynnt um innköllunina símleiðis og með tölvupósti

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.