Innkallanir hjá Brimborg og Öskju

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Brimborg ehf  um að innkalla þurfi Ford Galaxy / X-Max bifreiðar af árgerð 2015-2020. Ástæða innköllunarinnar er að nauðsynlegt er á að skipta um bolta í hjólaspyrnu að aftan.

Þá hefur Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Bílaumboðinu Öskju ehf  um að innkalla þurfi 22 Mercedes-Benz C-class og GLE bifreiðar. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að kælimiðilslögn sé ekki rétt staðsett. Innköllun felst í skoðun og möglega lagfæringu á staðsetningu umræddarar kælimiðilslagnar.

Viðkomandi bifreiðareigandum verður tilkynnt um innköllunina bréfleiðis. 

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.