Innköllun hjá Bílabúð Benna

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Bílabúð Benna ehf  um að innkalla þurfi 50 Opel Ampera bifreiðar af árgerð 2016-2019. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að rafmótor virkar ekki sem skildi.

Viðkomandi bifreiðareigendum verður tilkynnt um innköllunina  bréfleiðis. 

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.