Ísland hentar vel fyrir rafbílavæðingu

Rannsókn Orku náttúrunnar á kolefnisfótspori rafbíla við íslenskar aðstæður er komin út.  Á Íslandi höfum við hreina raforku en hátt olíuverð auk þess sem íbúar eru nógu fáir til að hægt sé að mæta eftirspurn. Landið hentar því afar vel fyrir rafbílavæðingu. Rannsóknin og niðurstaða skýrslunnar var tilkynnt í dag en hún getur varpað ljósi á margt það sem fólk er að velta fyrir sér í þessum efnum.

Skýrslan var unnin af starfsfólki Orku náttúrunnar, þeim Kevin Dillman umhverfisverkfræðingi og Dagnýju Hauksdóttur, doktor í iðnaðarverkfræði sem einnig er menntuð í lífsferilsgreiningu og mati á umhverfisáhrifum.

Í skýrslunni kemur fram að rafbílar losa fjórfalt minna af gróðurhúsalofttegundum, á líftíma sínum, en bensín- og dísilbílar.

Helstu atriði skýrslunnar:

  • Heildarlosun rafbíls, frá framleiðslu að 220 þúsund km. akstri við íslenskar aðstæður, er 4-4,5 sinnum minni en heildarlosun bíla sem nota jarðefnaeldsneyti.
  • Ólíkur uppruni raforku skiptir lykilmáli en á Íslandi er öll raforka umhverfisvæn. Þess vegna er Ísland kjörland til rafbílanotkunar út frá umhverfissjónarmiðum.
  • Stærri rafhlöður (85 kW) hafa meiri áhrif á umhverfið en minni rafhlöður vegna aukinnar losunar við framleiðslu þeirra. Því skiptir máli að velja sér rafbíl og rafhlöðu eftir þörf og áætlaðri notkun.

 Skýrsluna í heild sinni má nálgast hér.