Ívilnun virðisaukaskatts á tengiltvinnbifreiðar lýkur 6. maí

Ívilnun virðisaukaskatts við innflutning tengiltvinnbifreiða mun leggjast af í lok dags þann 6. maí 2022, sbr. XXIV. bráðabirgðaákvæði við lög um virðisaukaskatt nr. 50/1988 að því er fram kemur í tilkynningu frá tollayfirvöldum

Ívilnanir sem þessar bifreiðar hafa notið voru lækkaðar um helming um seinustu áramót úr 960 þúsund kr. á hverja bifreið í 480 þúsund krónur og stjórnvöld ákváðu að þegar 15 þúsund tengiltvinnbílar hafa verið skráðir á ökutækjaskrá féllu ívilnanir virðisaukaskatts þessara bíla alveg niður

Þann 29. apríl 2022 var fjöldi innfluttra tengiltvinnbifreiða kominn í 15.238 ökutæki en samkvæmt umræddu bráðabirgðaákvæði er óheimilt að fella niður virðisaukaskatt við innflutning tengiltvinnbifreiða frá og með sjötta virka degi næsta almanaksmánaðar eftir að samtals 15.000 slíkar bifreiðar, sem notið hafa þess háttar ívilnana, hafa verið skráðar á ökutækjaskrá.

Föstudagurinn 6. maí 2022, sem er fimmti virki dagur næsta almanaksmánaðar eftir að hámarksfjölda var náð, er því síðasti dagurinn sem hægt er að nýta sér ívilnun virðisaukaskatts vegna innflutnings tengiltvinnbifreiða.