Kia efst í áreiðanleikakönnun J.D Power

 Kia er í efsta sætinu í árlegri áreiðanleikakönnun banda­ríska grein­ing­ar­fyr­ir­tæk­is­ins J.D. Power. Þetta er sjötta árið í röð sem Kia er í efsta sætinu í könn­un J.D. Power. Kia deildi efsta sætinu með Dodge að þessu sinni.

Fjórir Kia bílar unnu sigur í sínum flokkum; Kia Sorento, Kia Soul, Kia Forte og Kia Sedona en tveir síðastnefndu bílarnir eru ekki seldir á Evrópumarkaði. RAM og Chevrolet urðu jafnir í 3-4 sæti. Genesis varð í efsta sæti lúxusbílamerkja.

Í könn­un J.D. Power voru rúm­lega 87 þúsund bí­leig­end­ur nýrra bíla árgerð 2020 spurðir fjölmargra spurn­inga á mörg­um mis­mun­andi sviðum um áreiðan­leika bíla þeirra og bil­an­ir á fyrstu 90 dögum.

Með þess­ari könn­un er J.D Power að fá sem besta mynd af gæðum bíla allra bíla­fram­leiðenda. Þetta er í 34. skipti sem könnun J.D. Power er framkvæmd en hún þykir ein virtasta áreiðanleikakönnunin í bílageiranum.