Kia efst í áreiðanleikakönnun J.D. Power

Kia er í efsta sætinu í árlegri áreiðanleikakönnun bandaríska greiningarfyrirtækisins J.D. Power yfir bílaframleiðendur. Þetta er áttunda árið í röð sem Kia er í efsta sætinu í könnun J.D. Power í flokki bíla sem teljast magnsölubílar.

Þetta er þó í fyrsta skipti sem Kia er í fyrsta sæti yfir öll bílmerki, ekki einungis magnsöluframleiðendur og því er sannarlega um tímamót að ræða.

Í könnun J.D. Power voru rúmlega 33 þúsund bíleigendur spurðir fjölmargra spurninga á mörgum mismunandi svipuð um áreiðanleika bíla þeirra og bilanir síðustu þrjú ár. Könnunin var framkvæmd í júlí til nóvember á síðasta ári en í þetta skipti var hluta bætt við sem snýst að hugbúnaðarbilunum.

Með þessari könnun er J.D Power að fá sem besta mynd af gæðum bíla allra bílaframleiðanda. Þetta er í 36. skipti sem könnun J.D. Power er framkvæmd en hún þykir ein virtasta áreiðanleikakönnun í bílageiranum.