Kia eykur markaðshlutdeild sína í Evrópu

Kia jók markaðshlutdeild sína í Evrópu um 5% milli ára og er í dag með 4,8% hlutdeild seldra bíla á Evrópumarkaði. Bílaframleiðandinn hefur aldrei verið með hærri markaðshlutdeild í sögu fyrirtækisins og seldi alls 542.423 nýja fólksbíla á síðasta ári og sló eigið sölumet um 7,9%. Kia Ceed var söluhæsti bíll framleiðandans í Evrópu á síðasta ári en Sportage og Niro komu í öðru og þriðja sæti.

,,Árið 2022 gekk afskaplega vel fyrir Kia. EV6 fékk fjölda viðurkenninga og var m.a. útnefndur Bíll ársins og Niro fékk einnig mikið af verðlaunum og er nú tilnefndur sem bíll ársins," segir Jason Jeong, forstjóri Kia Europe.

Kia hefur verið einn vinsælasti bílaframleiðandi Íslendinga undanfarin ár og var EV6 valinn bíll ársins meðal bílablaðamanna á Íslandi. Mikil eftirvænting ríkir eftir nýjum og alrafmögnuðum EV9 sportjeppa sem mun hafa allt að 540 kílómetra drægi.