Kia söluhæsti rafbíllinn á árinu

Rafbílar eru nú vinsælasti kostur kaupenda þegar sala á nýjum bílum er skoðuð á síðustu átta mánuðum ársins. Ef horft er til seldra fólksbíla þá er Kia söluhæsti rafbíll ársins en alls hafa 356 Kia rafbílar selst á árinu. Tesla er í öðru sæti með 354 selda bíla og Hyundai í því þriðja með 261. Í næstu sætum eru Skoda með 244 bíla selda og Polestar með 228. Þegar talað er um rafbíla er átt við bíla sem aka 100% af sínum akstri á rafmagni.

,,Við finnum fyrir auknum áhuga á rafbílum með hverjum mánuðinum sem líður. Kia var söluhæsta bílategundin í flokki fólksbíla á síðasta ári og við höldum okkar striki á þessu ári og er Kia önnur mest selda tegundin hér á landi og mest seldi rafbíllinn þrátt fyrir að miklar framleiðslutakmarkanir hafi verið," segir Þorgeir Pálsson, sölustjóri Kia hjá Bílaumboðinu Öskju.

Tæplega 12.000 fólksbílar hafa verið seldir það sem af er ári og eru rafbílar um 25% af heildarsölu hér á landi. Ef skoðuð er sala til einstaklinga þá eru um 53% kaupanda sem velja sér rafbíl og þar á eftir koma tengiltvinnbílar með 19% hlutdeild. Hybrid bílar hafa um 15% markaðshlutdeild en dísel- og bensínbílar elta lestina með samtals 13% hlutdeild af sölu nýskráðra fólksbíla.