Kia vann tvöfaldan sigur á verðlaunahátíð í Bretlandi

Kia heldur sigurgöngu sinni áfram og vann tvöfaldan sigur á hinni eftirsóttu What Car? verðlaunahátíð í Bretlandi um helgina. Bæði Kia Sportage og hinn nýi og rafmagnaði EV9 sem væntanlegur er á markað, unnu til verðlauna.

Kia EV9 er fyrsti 7 manna, 100% rafdrifni jeppinn frá Kia og er partur af rafmagnaðri vegferð Kia sem stefnir að því að vera leiðtogi í rafbílavæðingu á heimsvísu. Kia Sportage er fjórhjóladrifinn sportjeppi og er bæði í boði í tvinn og tengiltvinn útgáfum. Tengiltvinntækni Kia Sportage skilar allt að 70km af rafmögnuðum akstri og 265 hestöflum.

,,Við erum mjög stolt að vinna tvö stór verðlaun á  What Car? verðlaunahátíðinni, sem eru þau stærstu í Bretlandi. Þetta eru afar eftirsótt verðlaun og þetta er mikilvægur áfangi fyrir okkur. Þetta er enn eitt spennandi árið hjá Kia og endurspeglar vegferð okkar í að vera áfram leiðandi bílaframleiðand í sjálfbærnivæðingu nýrra bíla," segir David Hilbert, markaðsstjóri hjá Kia í Evrópu.