Komið að vorhreinsun í húsagötum

Með hækkandi sól heldur eru götusóparnir árlegur vorboði í Reykjavík. Vorhreinsun Reykjavíkurborgar hófst í ár þann 26. mars en helstu göngu- og hjólaleiðar eru í forgangi.  Hreinsunin er komin vel af stað og er nú komið að húsagötum. Forsópun hófst í dag og viku síðar verða viðkomandi götur síðan sópaðar og þvegnar og er þá nauðsynlegt að færa bíla. Daginn áður en íbúagötur eru þvegnar sendir Reykjavíkurborg SMS til að láta íbúa vita af þvottinum.

Mikilvægt að færa bíla

Mikilvægt er að bílar séu færðir úr götunni á meðan á götuþvotti stendur. Það flýtir mjög fyrir og skilar betri þrifum þegar bílar eru færðir og ekki lagt á ný fyrr en hreinsun er að fullu lokið. Þetta gildir eingöngu um almenn stæði í götunni og á borgarlandi en ekki stæði innan lóðarmarka íbúðarhúsa og fyrirtækja.

Símaskilaboð send daginn fyrir götuþvott

SMS er sent til íbúa daginn áður til að tryggja að allt gangi sem best fyrir sig en hefðbundnar skiltamerkingar verða enn fremur settar upp til að láta íbúa og gesti borgarinnar vita af götuþvottinum. Reykjavíkurborg sendi einnig skilaboð til fólks í fyrra og gaf það góða raun. Vonast er til þess að fólk taki vel í skilaboðin og liðki til við hreinsunina með því að færa bíla sína en það skilar hreinni og fallegri götum.

Í þetta sinn verður byrjað í Hlíðum, Laugardal, Grafarvogi og Kjalarnesi.

Athugið að Vegagerðin sér um rekstur og hreinsun þjóðvega í þéttbýli. Dæmi um þjóðvegi í borginni eru Kringlumýrarbraut, Miklabraut, Hringbraut, Vesturlandsvegur og Reykjanesbraut.