Lagafrumvarp lagt fram um breytingar á lögum um leigubifreiðaakstur
Ríkisstjórnin samþykkti í gær að leggja fram á Alþingi lagafrumvarp Eyjólfs Ármannssonar innviðaráðherra um breytingar á lögum um leigubifreiðaakstur (120/2022) sem tóku gildi 1. apríl 2023. Í frumvarpinu verða lagðar til ýmsar breytingar í ljósi reynslu af lögunum og markmiða laganna um að tryggja gott aðgengi að hagkvæmri, skilvirkri og öruggri þjónustu fyrir neytendur.
„Að fenginni reynslu af nýjum leigubifreiðalögum er ljóst að gera þarf nauðsynlegar breytingar til að auka öryggi farþega og efla faglega þjónustu og starfsumhverfi leigubifreiðastjóra. Leigubifreiðar veita mikilvæga sólarhringsþjónustu, m.a. fyrir þá einstaklinga sem ekki geta nýtt annan ferðamáta. Traust og skilvirk leigubílaþjónusta er þannig forsenda aukinna lífsgæða og öruggara samfélags fyrir okkur öll,“ segir Eyjólfur.
Helstu breytingar með frumvarpinu
- Rafrænt eftirlit og varðveisla gagna – Leigubifreiðastöðvar eiga að skrá rafrænt allar ferðir sem farnar eru á þeirra vegum, bæði upphafs- og endastöð, akstursleiðina sjálfa og greiðslur farþega. Upplýsingarnar verða varðveittar í minnst 60 daga og stöðvar þurfa að gera árlega úttekt á stafrænum kerfum til að tryggja öryggi gagna.
- Stöðvaskylda – Ekki verður lengur leyfilegt að reka leigubílaþjónustu án þess að tengjast leigubifreiðastöð með gildu starfsleyfi.
- Neytendavernd – Leigubifreiðastöðvar skulu bjóða upp á einfalt og gagnsætt ferli fyrir kvartanir og ábendingar, þannig að farþegar geti tilkynnt um óeðlilega hátt verð eða slæma þjónustu. Þá verður leigubílstjórum jafnframt skylt að upplýsa farþega sérstaklega um þessi réttindi sem og möguleika á að kvarta til viðeigandi stjórnvalda hverju sinni sem og möguleika á að kvarta til viðeigandi stjórnvalda hverju sinni.
Frumvarpið verður lagt fram á vorþingi og er hugsað sem fyrsta skref í heildarendurskoðun laganna. Þörf á frekari breytingum verður metin síðar á árinu, m.a. á grunni tillagna starfshóps sem skipaður var í vetur til að meta reynslu af setningu laga um leigubifreiðaakstur.
- Skoða frumvarpsdrög í samráðsgátt (samráði lauk í mars)