Land Cruiser Black sýndur hjá Toyota

Laugardaginn 2. september kl. 12 – 16 verður fyrsta stórsýning haustsins hjá viðurkenndum söluaðilum Toyota í Kauptúni, Reykjanesbæ á Selfossi og Akureyri.

Á sýningunni má sjá allt það nýjasta frá Toyota en stjarna sýningarinnar verður glæsileg sérútgáfa af Land Cruiser - Land Cruiser 150 Black sem er búinn aukahlutapakka að verðmæti 728.000 kr. og fylgir bílnum án aukakostnaðar.

Með Land Cruiser 150 Black fylgja svartar felgur og GoodYear heilsársdekk, húddhlíf, toppgrindarbogar, krómlisti á afturhlera, krómstútur á púst, krómhlíf á spegla, hlíf á afturstuðara, hliðarlistar með krómi og gluggavindhlífar.

Land Cruiser tekur sig sannarlega vel út með þessum aukabúnaði eins og sjá má á meðfylgjandi mynd og sumir segja að Íslandsbíllinn hafi aldrei verið fallegri.