Land Rover fær ekki rispur – bara ör
Land Rover er eitthvað sem Ingólfur Stefánsson þekkir vel, verið lengi með jeppaferðir og þá framan af helst bara á Land Rover og hefur sjálfur átt um 19 af þeirri gerð. Svo fann hann draumabílinn sinn Discovery I Windsor árgerð 1997 og þar sem hann á líka nýjan Defender árgerð 2023 var hann beðinn um að bera saman þann gamla og nýja.
Einfaldur en keyrði þó síður til Marokkó
,,Mér hefur alltaf fundist þessi gamli Discovery I, einfaldur og maður hefur svo góða tilfinningu við að keyra hann en mér reyndar líður vel við að keyra gamla bíla. Auðvitað er þessi nýji tölvubíll frábær og myndi frekar keyra á honum til Marokkó – gæti alveg farið á þeim gamla en það tæki bara svolítið miklu meiri tíma,” sagði Ingólfur og fann loksins sinn bíl.
Elti upp eigandann
,,Ég hafði leitað að svona bíl í mörg ár og þetta er draumabílinn, fann bara haugryðgaða bíla í Reykjavík en sá einn á Akureyri, elti hann og spurði eigandann hvort ég mætti vera fyrstur í röðinni ef hann ætlaði að selja hann en hann var ekki til sölu. Ég bauð ákveðið verð og svo hringdi hann í mig eftir viku og spurði bara hvort ég færi ekki örugglega vel með bílinn.”
Land Rover fær ör – ekki rispur
,,Mínir Land Roverar eru með einhverjar rispur en mér er bara alveg sama sem á örugglega ekki við marga aðra bíla. Svo segja líka Land Rover menn að Defender rispast aldrei, hann færi bara ör. Ég hef þjösnast á þessum bílum og farið ótrúlegar ferðir á erfiðustu vegina. Þetta snýst eitthvað um ímyndina, Land Rover er bíll sem má ferðast á til að taka á því, mjög sterkur eins við fundum við prófanir fyrir nokkrum árum – hvað hann er svakalega sterkur.”
Hvernig sérðu framtíð Land Rover?
,,Ég fór fyrst á Land Rover með bílablaðamenn í um 14 ár til að taka myndir. Sá bíll átti að fara í hönnun en svo var skyndilega hætt við og byrjað upp á nýtt, sem segir hvað það er lengi verið að spá í svona hluti. Eins og hjá öllum bílaframleiðendum þá snýst þetta bara um hvað selst. Landroverinn seldist ekki vel, jafnvel 25.000 á ári sem er ekki mikið og þá skiptir sagan ekki máli, þó sagan sé 70 ára gömul. Það er þó verið að selja þennan nýja Defender og mér finnst þeir hafa náð að halda ímynd Landrover vel sem æfintýramerki,” bætir Ingólfur við en segir þessa tegund að hverfa.
,,Ég hef ekki séð marga svona gamla á götunni í dag enda eru þeir að detta út en ég held að þessi gamli minn sé einn besti svona bíll landsins. Þetta fer að verða eins og rússajeppinn, sem maður sér ekki lengur. Ef maður er keyra og mætir þessum gömlu bílum þá veifa menn sín á milli. Svo er auðvitað þegar barnabörnin eiga að taka við, þá verða eflaust bara komnir einhvers konar flugbílar.”