Landsbyggðin að lamast undan háu eldsneytisverði

FÍB lýsir yfir þungum áhyggjum yfir andvaraleysi stjórnvalda gagnvart verðhækkunum á bifreiðaeldsneyti. Ekki aðeins íþyngja þær fjárhag heimilanna heldur stefnir í verulegan samdrátt í viðskiptum og þjónustu um allt land vegna minnkandi umferðar.

FÍB ítrekar því áskorun sína til stjórnvalda frá 28. febrúar sl., um að lækka álögur hins opinbera á bifreiðaeldsneyti. FÍB leggur til við stjórnvöld að skattar á eldsneyti verði lækkaðir um 20 kr.

Umferðin í mars dróst saman um 15,5% samanborið við mars í fyrra. Vegagerðin spáir verulegum samdrætti út árið ef þessi þróun heldur áfram. Samdrátturinn er mestur á landsbyggðinni, sem hefur afar neikvæð áhrif á verslun og þjónustu, ekki síst ferðaþjónustuna.

Það geta varla talist hagsmunir ríkissjóðs að lama atvinnulíf á landsbyggðinni með óbreyttri skattlagningu.

FÍB bendir á að ríkissjóður tekur til sín um 115 kr. af hverjum bensínlítra. Skatttekjurnar hafa hækkað um 52% frá miðju ári 2008.

Allt mælir með lækkun þessara skatta. Hátt eldsneytisverð eykur rekstrarkostnað fyrirtækja, sem hækkar flutningskostnað, sem hækkar vöruverð, sem hækkar verðbólgu, sem hækkar skuldir heimilanna – og minnkar ráðstöfunartekjur.