Lang flestir keyra til og frá vinnu

Lang flestir þeirra sem svöruðu síðustu spurningunni hér á heimasíðunni sögðust aka sjálfir til og frá vinnu, eða 72,4 prósent.

Spurt var þessarar spurningar: Hvernig ferðast þú aðallega til og frá vinnu?

http://www.fib.is/myndir/Til-og-fra.jpg

Næst algengasti ferðamátinn hjá þeim sem svöruðu var reiðhjólið en 9,3 prósent svarenda sögðust hjóla. 7,8 prósent sögðust ganga en aðeins 6,2 prósent sögðust taka strætó. Fæstir, eða 4,3 prósent sögðust fá far með öðrum.

Alls svöruðu 656 spurningunni.