Leggur til kílómetragjald – líst illa á hugmyndir um umhverfisgjald

 Í Morgunútvarpi Rásar 2 í morgun kom fram í máli Runólfs Ólafssonar, framkvæmdastjóra Félags íslenskra bifreiðaeigenda, að honum líst illa á hugmyndir tveggja þingmanna Vistri grænna um að veita sveitarfélögum heimild til að innheimta umhverfisgjöld, meðal annsr af mengandi bílum.

Í máli Runólfs kom fram að hann skilji alveg hugmyndafræðina og hugsunina á bak við þetta.

,,Þetta séreyndar í sjötta sinn sem þau leggja þessa þingsályktunartillögu fram – en enn einn skattstofnin á ökutæki og heimilisbílinn, það er eitthvað sem ég á mjög erfitt með að sjá að geti verið raunhæft,“ sagði Runólfur Ólafsson, formaður FÍB, í Morgunútvarpi Rásar 2.

„Við sjáum það að ríkið er innheimta um 80 milljarða af bílum og umferð á hverju ári. Sveitarfélögin geta alveg ásælst hluta af því til einhverra verkefna, en, eins og ég segi, ég sé ekki að það sé svigrúm, hvað þá í núverandi ástandi, til að bæta enn á fjölskyldurnar í landinu.“

Vill einfalda kerfið með kílómetragjaldi

Nú þegar séu innheimtir skattar á eldsneyti, bifreiðagjald, vörugjöld við innflutning á bílum og virðisauki sem allt renni til ríkisins. Hann telji þetta allt með þegar hann reikni sig upp í 80 milljarða. Rætt hafi verið um hvernig rafbílaeigendur sem ekki greiði eldsneytisgjald eigi að koma að fjármögnun vegakerfisins og FÍB hafi stungið upp á því að einfalda kerfið.

„Þannig að það verði farið í svokallað kílómetragjald og þá verði bara borgað af bílum miðað við ekna kílómetra. Það verði búin til einhver reikniformúla sem gengur út frá þyngd og koltvísýringsmengun viðkomandi ökutækis og þannig gætum við fengið mjög sanngjarna skattheimtu,“ segir Runólfur og fullyrðir að þetta yrði tæknilega mjög einfalt enda sé lesið af kílómetramæli reglulega. Fólk geti þá áætlað á sig kílómetranotkun og gjaldheimtan sé svo leiðrétt eftir álestur, eins og gert er við greiðslu fyrir hita og rafmagn.