Lögreglan beitir viðurlögum frá 20. maí séu ökutæki á negldum dekkjum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun um miðja næstu viku eða frá og með 20. maí beita viðurlögum séu ökutæki enn á negldum dekkjum í umferðinni.

Vill lögreglan því hvetja ökumenn til að skipta strax af nagladekkjum til að forða þeim frá háum sektum, sem geta numið allt að 80 þúsund krónum fyrir fólksbíl.

Samkvæmt laganabókstaf eru nagladekk bönnuð frá og með 15. apríl nema aðstæður gefi tilefni til annars. Aldrei hefur sektum verið beitt fyrir nagladekkjanotkun í apríl.

 

Mynd: Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu.