Lokið við tvöföldun Vesturlandsvegar í Mosfellsbæ

Forstjóri Vegagerðarinnar og fulltrúi Mosfellsbæjar skrifuð undir verksamning við Loftorku Reykjavík ehf. á dögunum vegna lokaáfanga við endurbætur á Vesturlandsvegi í Mosfellsbæ. Um er að ræða endurbyggingu og breikkun auk lagnavinnu á Hringveginum á um 520 m kafla milli Langatanga og Reykjavegar.

Er þetta eini kaflinn þar sem ólokið er að aðskilja aksturstefnur Vesturlandsvegar í gegnum Mosfellsbæ. Einnig verður gerð ný tenging af Vesturlandsvegi inn á Sunnukrika. Háspennustrengir í eigu Landsnets og Veitna verða endurnýjaðir.

Verkið er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Mosfellsbæjar, Landsnets og Veitna. Einnig var skrifað undir samstarfsmaning Vegagerðarinnar og Mosfellsbæjar. 

Loftorka Reykjavík ehf., átti lægsta tilboðið sem hljóðaði upp á tæpar 258 m.kr. sem reyndist um 30 m.kr. yfir áætluðum verktakakostnaði. Vinna við verkið er þegar hafiðen því skal að fullu lokið 1. nóvember nk.