Malbikað í borginni fyrir milljað í sumar

Borgarráð hefur heimilað umhverfis- og skipulagssviði að bjóða út framkvæmdir við malbikun í sumar. Um er að ræða bæði malbikun yfirlaga sem og endurnýjun með fræsingu og malbikun.Þannig er áætlað að malbika um 20,2 kílómetra m af götum.  Áætlaður kostnaður er 784 mkr.

Að auki verður unnið við hefðbundnar malbiksviðgerðir og er kostnaður við þær áætlaður um 207 mkr. Áætluð upphæð malbikunarframkvæmda 2020 er því 991 mkr.  Einnig verður lagt malbik á götur sem verða endurnýjaðar í sumar.

Framkvæmdir ársins 2020 eru í samræmi við átaksáætlun um endurnýjun á malbiki á götum Reykjavíkur sem hófst árið 2018. Á árunum 2018-2022 verður um 6200 milljónum króna varið til  endurnýjunar á malbiki í borginni.

Götur og götukaflar sem eru í forgangi 2020 eru: Leifsgata, Lækjargata, Skúlagata, Snorrabraut, Ásvallagata, Bræðraborgarstígur, Engihlíð, Grenimelur, Hjarðarhagi, Ingólfsstræti, Katrínartún, Laugavegur, Lynghagi, Meistaravellir, Miklabraut 22 - 64, húsagata, Nauthólsvegur, Nóatún, Seilugrandi, Skaftahlíð, Skipholt, Smyrilsvegur, Starhagi, Stórholt, Sturlugata, Túngata, Varmahlíð, Ægisgata, Ægissíða, Engjavegur, Faxafen, Hörgsland, Lágmúli, Sundaborg, Vegmúli, Hrísateigur, Rauðalækur, Ásgarður, Dragavegur, Sægarðar, Borgartún, Sundlaugavegur, Grensásvegur, Háaleitisbraut, Suðurlandsbraut, Álfheimar, Skeiðarvogur, Gautland, Kringlan, Listabraut, Tunguvegur, Arnarbakki, Álfabakki, Árskógar, Brekknaás, Bæjarháls, Hálsabraut, Hjallasel, Hólaberg, Lyngháls, Nethylur, Norðurfell, Núpabakki, Rangársel, Selásbraut, Skógarsel, Stekkjarbakki, Straumur, Stuðlaháls, Vesturhólar, Ystasel, Bíldshöfði, Blikastaðavegur, Borgartorg, Borgarvegur, Breiðhöfði, Dyrhamrar, Eirhöfði, Fossaleynir, Funahöfði, Korpurampi, Korpúlfsstaðarvegur, Lambhagavegur, Langirimi, Leiðhamrar, Malarhöfði, Ólafsgeisli, Sóleyjarrimi, Spöngin, Stórhöfði botnlangi nr. 37, Stórhöfði /Nóntorg og Vesturfold.

Listinn getur eitthvað breyst eftir því hvernig göturnar koma undan vetri og eftir ástandsskoðun í vor. Þá geta einhverjar götur dottið út og aðrar komið inn.