Malbikunarframkvæmdir í fullum gangi

Malbikunarframkvæmdir standa nú sem hæst yfir víða um land. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er Í kvöld, fimmtudaginn 27. júlí og aðfaranótt 28. júlí stefnt að því að malbika hringtorg á Reykjanesbraut við N1 í Hafnarfirði. Hringtorginu verður lokað á meðan framkvæmd stendur yfir og hjáleiðir settar upp.

Umferðahraði verður lækkaður framhjá vinnusvæðinu og má búast við lítilsháttar umferðartöfum. Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 21:00 til kl. 06:00.

Á föstudagskvöld 28.júlí og aðfaranótt laugardags 29. júlí er stefnt að því að malbika Rósaselshringtorg í Keflavík. Hringtorginu verður lokað í tveimur áföngum og verður umferðarstýring til og frá flugvelli á meðan framkvæmd stendur yfir. Hjáleiðir verða settar upp, umferðahraði lækkaður framhjá vinnusvæðinu og má búast við lítilsháttar umferðartöfum.

Einnig er stefnt á að malbika akreinar á Reykjanesbraut að hringtorginu. Veginum verður lokað á meðan, hjáleiðir settar upp og umferðarhraði lækkaður framhjá vinnusvæðinu. 

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin sem eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.

Viðhaldsframkvæmdir

Vegagerðin varar við töluverðum viðhaldsframkvæmdum á Hringvegi frá Borgarnesi að Laugabakka í Miðfirði næstu daga. Vegfarendur geta búist við umferðarstýringu við framkvæmdasvæðið með 10-15 mínútna bið í senn.  Einnig er unnið við blettanir í Dölunum.

Vegfarendur eru beðnir að aka varlega um nýlögð svæði, virða stöðvunarskyldu og hraðatakmarkanir á vinnusvæðum til að lágmarka umferðartafir og tjón vegna steinkasts.