Málþing um börn og samgöngur

Málþing um börn og samgöngur verður haldið föstudaginn 8. nóvember frá kl. 13 til 17 á vegum samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins í samvinnu við Samgöngustofu og Vegagerðina. Málþingið verður haldið í Sveinatungu á Garðatorgi (Ráðhúsi Garðabæjar).

Á þinginu munu bæði ungir sem aldnir taka til máls og ræða stöðu barna í samgöngum í víðu samhengi. Í kjölfar fyrirlestra verða pallborðsumræður. Málþingið er öllum opið en nauðsynlegt er að skrá sig. Fundinum verður streymt í beinni útsendingu á vef Stjórnarráðsins.

Skráning á málþingið

Dagskrá

13:00 – Málþing sett

  • Ávörp
    Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra
    Þórunn Egilsdóttir, formaður samgönguráðs
  • Umferðaröryggi - okkar mál!  
    Karín Óla Eiríksdóttir, formaður ungmennaráðs Grindavíkur
  • Hvernig við sjáum umferðaröryggið.
    Atli Þór Jónsson og Fannar Freyr Atlason, björgunarsveitarmenn í Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu
  • Samstarf við Samgöngustofu um að efla umferðaröryggi grunnskólabarna í sveitarfélaginu
    Ólafur Hilmarsson, deildarstjóri við Grunnskólann í Hveragerði
  • „Komiði með hætturnar!“ Skipulag, þjóðvegir og börn.
    Erna Bára Hreinsdóttir, forstöðumaður hjá Vegagerðinni
  • Pallborð með fyrirlesurum fyrir hlé

14:50 – Kaffihlé

  • Hagnýting sálfræðilegrar þekkingar til að breyta ferðavenjum
    Sigrún Birna Sigurðardóttir, samgöngu- og umferðarsálfræðingur
  • Mikilvægi umferðaröryggisáætlunar fyrir minni sveitarfélög
    Þorsteinn Gunnarsson, sveitarstjóri Skútustaðahrepps
  • Öryggi barna í Reykjavík
    Berglind Hallgrímsdóttir og Höskuldur Kröyer, samgönguverkfræðingar hjá Eflu og Trafkon
  • Pallborð með fyrirlesurum eftir hlé
  • Saga Garðarsdóttir flytur gamanmál

17:00 – Málþingi lýkur

 

  • Fundarstjóri er Ragnhildur Hjaltadóttir ráðuneytisstjóri.