Meðalaldur fólksbílaflotans að hækka

Bílgreinasambandið spáir því að um 12.750 nýir fólksbíla verði skráðir á árinu 2020 en gerir það um 10% aukningu frá árinu sem er að ljúka.  Samkvæmt bæði Arion banka og Íslandsbanka er spáð lítils háttar vexti í einkaneyslu fyrir næsta ár. 

Þá hefur stórkaupavísitala Gallup, sem mælir meðal annars hversu líklegir neytendur eru til að festa kaup á bifreið á næstu 6 mánuðum, hækkað í síðustu þremur mælingum miða við sama tíma á síðasta ári. Að sama skapi eru vextir í sögulegu lágmarki sem gæti ýtt undir sölu á nýjum bílum.

Meðalaldur fólksbílaflotans er einnig að hækka en stórir árgangar í bílaflotanum eru komnir á meðalaldur sem í fyrra var 12,3 ár og fer hækkandi. Uppsöfnuð fjárfestingaþörf bílaleigna mun hafa áhrif á fjölda seldra nýrra fólksbíla árið 2020 en nýskráðir fólksbílar til bílaleigna í ár voru um 30% undir sölu þeirra á árinu 2018. Meðalaldur bílaleiguflotans er einnig að hækka og um 20% flotans eru nýir bílar sem er töluvert lægra en hefur verið síðustu 4 ár.

Fram kemur í upplýsingum frá Bílgreinasambandinu að einnig séu jákvæðar breytingar þar sem Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis hefur nú skilað af sér í áliti vegna frumvarps um breytingar á ýmsum lögum um skatta (vistvæn ökutæki o.fl.). Þar er m.a. er fjallað um ívilnanir vegna rafmagns-, vetnis-, og tengiltvinnbíla næstu árin.

Þar er lagt til að hækka ívilnanir til rafmagns- og vetnisbíla en einnig tekur nefndin undir sjónarmið Bílgreinasambandsins og leggur til að frumvarpinu verði breytt á þann hátt að það framlengi enn frekar ívilnunum vegna tengiltvinnbíla ásamt því að hækka fjöldamörk þeirra ökutækja upp í 15.000 í stað 12.500. Á næsta ári munum við einnig að sjá aukið úrval rafmagns- og tengiltvinnabíla koma inn á markaðinn.